Um niðurrifshugsanir og aðra lesti

Þó ég óski engum þess að líða illa er það ákveðin huggun fyrir mig að finna að ég er ekki ein. Að finna það að aðrir eru að ganga í gegnum svipaða hluti og upplifa samskonar tilfinningar og ég er ótrúlegur stuðningur. Þess vegna er meðferðin mín svo mikil snilld. Það gefur líka svo mikla von að horfa á þær sem eru komnar skrefinu lengra og fylgjast með batanum hjá þeim, því oft er svo erfitt að greina framfarir hjá sjálfum sér.
Ég á nefnilega oft svo ósköp erfitt með það að greina framfarir hjá sjálfri mér. Ég get samt núorðið litið til baka og séð það svo greinilega að ég er á allt öðrum stað en ég var fyrir 3 mánuðum. Fyrir 3 mánuðum var ég þrjósk og þver, enn í afneitun og lokaði öll ljótu leyndarmálin mín einhvers staðar inní mér. Það var vondur tími. Nú er ég að æfa mig í að tala.
Ég finn það að ég á enn töluvert langt í land, sérstaklega hvað varðar það að tala og segja frá. Þess vegna hefur bloggið gefið mér mikið því mér lætur oft svo mikið betur að skrifa mig frá því sem er að brjótast um í kollinum mínum. Með því svo að setja hugsanir mínar á veraldarvefinn er ég að opna á þetta alltsaman- skella öllum leyndarmálunum upp á borðið og kjafta frá. Þetta er mín leið og hún hjálpar mér. Ég veit hún hentar ekki öllum en hún hentar mér afar vel. Það er svo mikilvægt að finna upp sínar eigin hjálplegu leiðir, því enginn þekkir mig eins vel og ég sjálf.
Í vikunni vorum við á dagdeildinni með fræðslu fyrir starfsfólkið þar sem við fjölluðum um eigin bata og okkar sýn á sjúkdómnum. Það var svolítið skrítið að reyna að fræða fólk sem er sprenglært um þennan sjúkdóm en mér finnst þetta samt sniðugt framtak. Ekki hvað síst fyrir okkur sjálfar (dagdeildarkonurnar) því við sáum það enn og aftur, svart á hvítu að átröskun getur hent hvern sem er og sjúkdómurinn er lúmskur og hefur ótal birtingarmyndir. Við erum ekkert ófullkomnari en hver annar- við veiktumst en erum allar á batavegi og erum búnar að standa okkur vel.
Við skiptumst á að tala og þegar röðin kom að mér varð ég að lítilli stelpu í blöðrupilsi og lakkskóm. Ég fann hvernig ég roðnaði og blánaði og hvað mér fannst erfitt að tala- kjafta frá. Eftir á reif ég mig niður fyrir það að hafa talað lítið, ekki staðið mig nógu vel, ekki verið nógu málefnaleg, ekki nógu skipulögð, ekki nógu, ekki nógu.. Þessi niðurrifsstarfsemi er enn virk þó ég kunni betur að skrúfa fyrir flæðið núorðið. Ég má samt aldrei gleyma mér, ég þarf að vera vakandi fyrir þessum hugsunum því ég veit að þær eru ekki hjálplegar.
Ég kom þó að setningunni minni sem ég hef á "replay" í höfðinu þessa dagana: " Ég fæddist ekki með átröskun og ég ætla ekki að deyja með átröskun". Þetta er bara tímabil í lífi mínu og ég á eftir að takast á við svo ótal margt annað og áreiðanlega upplifa skemmtilega hluti að þessari vinnu lokinni.
Þetta verður allt í lagi. Og þó ég geti ekki talað mikið upphátt, þá get ég skrifað. Þess vegna skrifa ég og skrifa.. og það veitir mér styrk að vita að einhver lesi bloggið - því þá er ég þrátt fyrir allt að kjafta frá :)
Njótið aðventunnar, vinir mínir stórir og smáir
Gló


8 Comments:
Elsku Gló (magnaða!) þú ert flottust og fínust! Ekki gleyma því.
Mér finnst frábært hjá þér að nýta þennan miðli og skrifa þig í gegnum þetta! Við erum eins misjöfn og við erum mörg og það sem hentar einum hentar ekki öllum, gott að þú fannst leið sem hentar þér vel :) Þú ert líka svo frábær penni!
Og þrátt fyrir hvað ég er "eðilileg" (hahahaha hefurðu heyrt annan betri!??) þá er ég líka á fullu í niðurrifshugsunum - þetta "gráa" apparat manns er ótrúlega skrítið og merkilegt fyrirbæri!
Ef þú vilt spjall eða öxl eða eyra eða hvað sem er ekki hika við að hafa samband .. hvenær sem er :)
Haltu áfram á þessari flottu braut sem þú ert komin á.
Knús og Kram - Ásta "blóm"
(es sem er strax farin að hugsa "æ þetta var ekki vel orðað - uss þetta var ekki nógu gott ... *klikk*)
Gló Gló mín
samlíking þín með lakkskóna og blöðrupilsið rifjaði upp margar gamlar mynningar um þig sem ég varðveiti vel. vegna þess að allar eru svo skemmtilegar.
skil vel að það sé ervitt að tjá sig það hljóta allir að skilja. en þú hefur þennann frábæra hæfileika að vera frábær penni það eru sko ekki allir. ekki spurning að þú ert á góðri leið en munum góðir hlutit gerast hægt. Hef aldrei vitað af neinum sem tekst á við þennann sjúkdóm verða albata á einum mánuði því miður vildi að satt væri.Vertu glöð engillinn minn og njóttu jólana hlakka til að sjá ykkur og smá fólkið hvað þau hafa stækkað verð að hitta aðstoðar dýralæknirinn
Þúsund risa knús
Gamla í sveitinni
Elsku stelpan mín !
Það er það auðveldasta í heimi að vera með niðurrifsstarfsemi á sjálfan sig, það þekki ég, og hugsa stundum að þú sækir þetta til min.
En við megum ekki hugsa svona, skamm, skamm,
Það reynist ekki öllum auðvelt að tala, hefur þú heyrt pabba þinn tala um hvernig honum líður ? Ó nei ekki aldeilis. En við erum öll að læra, pabbi, mamma börn og bíll. Þú ert bara æðisleg og ég horfi enn á myndina manstu ! og brosið fallega ! Ég bara elska þig og stend alltaf með þér sama á hverju dynur. mamma gamla
Kærar þakkir fyrir þessi fallegu komment, kæru konur !
Mamma- Takk, ég elska þig líka :)
Og ég elska þig...og mömmu þína :)
Fyrst er að koma auga á "dómarann", taka eftir því hvað hann er lúmskur og dónalegur alltaf hreint og svo lærir maður að svara honum...þó hann sér ansi góður í rökræðum þessi leiðindarpúki.
Einhverntíma var ég beðin um að ímynda mér sjálfa mig litla stelpu sem sæti í stól á móti mér og ég átti að segja við hana allt þetta ljóta og leiðinlega sem ég segi oft við sjálfa mig og þá fór ég auðvitað bara að gráta því ég vil ekki vera svona vond við þessa litlu fínu stelpu. Stundum verður ég að ímynda mér að ég sé ekki ég heldur einhver annar og þá sé ég hversu ferlega óréttlát ég get verið við mig því maður hugsar ekki svona illa um annað fólk...hahaha þetta er nú orðið hálf óskiljanlegt en þú ert svo mikill rugludallur að ég veit að þú skilur mig.
Lovelove
T
Já ég skil alveg hvað þú meinar Tinna ;) Maður er oft með svo tvöföld viðmið - þó að maður sjálfur geti verið alveg ómögulegur myndi maður aldrei líta þannig á nokkurn annan. Frekar fáránlegt bara !
Elska þig líka, sætan mín :-) Þarf svo að reyna að hitta á þig fyrir jólin og gefa þér eitt jólaknús !
Ég er svo stolt af þér krúttlan mín. Þú ert svo falleg og dugleg, þú klárar þetta tímabil með stæl, það er ég sannfærð um.
Merkilegt hvað skemmtilegir pennar geta látið hvað sem er verða góða lesningu, þú ert ein af þeim :)
Knús, Oddný
Æ vá, takk elsku Oddný mín :* :)
Post a Comment
<< Home