Army of me

Monday, January 18, 2010

Að sleppa og þola við

Ég hef stundum talað um það hér á blogginu mínu og í kjötheimum líka, að ég þurfi að læra að sleppa tökunum til að ná almennilegum bata. Ég held ég geti óhikandi sagt að það á við flesta ef ekki alla sem eru á batavegi frá átröskun að það að sleppa tökunum er skilyrði fyrir því að komast á leiðarenda.

Nú hljómar það ekki vel að eiga að sleppa tökunum þar sem stífar reglur og mikið taumhald hefur verið í hávegum haft í jafnvel mörg ár en í þessu samhengi er það jákvæður hlutur.

Nú þarf ég að sleppa og þola við. Þetta eru orðin sem ég þarf að hafa í huga þessa dagana. Ég þarf að leggja traust mitt í hendurnar á fagfólkinu þar sem dómgreind mín er veik á svellinu um þessar mundir. Ég þarf að treysta því að ég verði ekki í frjálsu falli til eilífðarnóns þó ég sleppi og hrapi. Ég hlýt að lenda einhvers staðar og hlýt að geta unnið mig upp frá þeim punkti.

Það má vera að ég sprikli og góli og gargi á leiðinni niður en það er allt í lagi. Svo lengi sem ég þori að sleppa. Ég gæti orðið smeyk- lofthrædd, jafnvel gripin skelfingu en ég verð að trúa því að þegar ég lendi, muni ég vera í heilu lagi. Það er nefnilega ekkert sem segir að ég verði alltaf í heilu lagi ef ég tek ekki skrefið til fulls og leyfi mér að sleppa tökunum. Henda reglum og stjórnsemi og gagnrýnisröddum út um gluggann, draga djúpt andann - og sleppa.

Þetta er hægt. Erfitt, en gerlegt. Ég held ég geti þetta þó ég sé hrædd - nánast skelfingu lostin.

3 Comments:

At January 19, 2010 1:03 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég er svo stolt af þér! =) Og mundu að, ef þú vilt, þá er ég tilbúin að fylgja þér every step of the way (*mússí mússí*) :)

Knús og kram - Þú ert einstök og frábær eins og þú ert!

- Ásta

 
At January 19, 2010 2:35 AM, Anonymous Anonymous said...

Rakst á þetta og langaði að deila því með þér:

Það hefur enginn þurft að leiða þig í freistni
- þangað hefurðu gengið ein og óstudd -
Þú ert stórkostleg eins og þú ert og þarft að læra að meta það.
Þér mun finnast þú eiga allt gott skilið og framtíðin verður björt og fögur.
Hamingjan er fólgin í því fyrst og fremst að hafa ánægju af því sem þú gerir.
Það krefst einungis einnar jákvæðrar hugsunar að sigra heilan her af neikvæðum hugsunum.
Breyttu hugsun þinni og heimur þinn breytist.
Allar viljum við hrós og klapp á bakið. En við þurfum að kunna að taka við því.
Vertu bein í baki og hnarreist og taktu á móti hrósi og hóli með stolti og brosi á vör.
Leitaðu hamingjunnar og þú munt finna hana.
Hamingjan er þín.

 
At January 21, 2010 1:50 AM, Anonymous Anonymous said...

Gló Gló mín bloggið hér til hliðar er eins og talað ú mínu hjarta.
Þú ert bara æðisleg og getur allt sem þú villt tekur bara dálítin tíma að rölta upp rétta stíginn en þú kemst hann ekki spurning.
Risa knús ú rigningunni í sveitinn
sú gamla

 

Post a Comment

<< Home