Army of me

Friday, February 12, 2010

Brothætt


Jafnvel þó batinn sé handan við hornið og öll þessi sjálfsvinna hafi skilað heilmiklum árangri, finn ég jafnframt hvað ég er ennþá brothætt og veik á svellinu.

Ég hef undanfarið verið heima með lasna dóttur okkar og átröskunin bankaði nær samstundis uppá til að minna á sig og biðja mig að koma að leika. Vandamálið er að hún er með eindæmum lævís með langar og beittar neglur sem svíður undan.

Ég áttaði mig ekki á því að ég væri byrjuð að sökkva inn í gamalt hegðunarmynstur og fann mér allar aðrar mögulegar og ómögulegar afsakanir án þess að finnast nokkuð athugavert við það.

Það var ekki fyrr en í dag, þegar ég mætti á Hvítabandið að nýju, að ég áttaði mig. Það var sem blaut tuska í andlitið og ég hef verið pínulítið brotin í dag. Mér fannst óþægilegt að finna hvað þetta er allt viðkvæmt og óstöðugt ennþá og fór að hafa áhyggjur af komandi vikum og mánuðum þegar ég fer að standa á eigin fótum og bera meiri ábyrgð á sjálfri mér aftur. Þá fyrst rífur í og ég get ímyndað mér að það verði erfitt á köflum. En ef ég ræð við þessar breytingar held ég að mér verði flestir vegir færir.

Það er allt í lagi að vera pínulítið brotin stundum. Svo lengi sem ég næ að púsla mér saman aftur og halda áfram.

12 Comments:

At February 13, 2010 6:23 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég get rétt ímyndað mér að það sé erfitt að horfast í augu við þetta þegar maður nær áttum aftur. En það að þú sást hvað var rangt við þetta sýnir hvað þú ert komin langt á veg. Knús, Oddný

 
At February 13, 2010 6:54 AM, Blogger Eygló said...

Takk, sæta :*

 
At February 13, 2010 8:39 AM, Anonymous Anonymous said...

Mundu mig, ég man þig, alltaf, alltaf og alltaf.
Og við ætlum að hafa það svoooo notalegt saman eftir nokkra daga, og fröken átröskun er ekki boðið í partýið.
Love you
þín mamma

 
At February 14, 2010 1:36 AM, Anonymous Anonymous said...

Sammála þú ert svo dugleg að sjá þetta sjálf og takast á við það
eins og mamma þín segir ekki bjóða fröken átröskun í partý taktu svínið af vinalistanum hún á ekki skilið að þekkja þig hendum henni út í hafsauga og ég vona að hún finni engvan vin mundu að þú ert hetjan okkar allra dúllan mín gamla í sveitinni

 
At February 14, 2010 2:19 AM, Blogger Eygló said...

Takk, elsku mamma og Erla :) Já hún má alveg fá að vera bara úti í kuldanum !

 
At February 14, 2010 12:42 PM, Anonymous Anonymous said...

Knús á þig Eylgó mín!
Kveðja, Jóhanna

 
At February 14, 2010 1:05 PM, Blogger Eygló said...

Takk, sæta Jóhanna :*

 
At February 15, 2010 5:02 AM, Anonymous Anonymous said...

Það hlýtur að vera batamerki að sjá það sjálf hvað var rangt svo þú ert á réttri leið :) Fröken átröskun getur sko bara átt sig og etið það sem úti frís.
þín frænka Heiða Björg

 
At February 15, 2010 6:04 AM, Anonymous Anonymous said...

Þú ert komin áleiðis til Panama skvíz! Þegar þú ert sjálf farin að sjá hvað er rétt og hvað er rangt =) Haltu áfram á sömu braut! Þú ert flottust og fínust! Og ef þú þarft einhvern til að halda í höndina á eða lána eyra - öxl eða hvað eina ekki hika þá við að hafa samband :)

knús og kram Ásta

 
At February 15, 2010 6:20 AM, Blogger Eygló said...

Takk elsku Heiða Björg og Ástan mín :)

 
At February 16, 2010 4:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Ég dáist að þér elsku Eygló. Þú ert svo dugleg, frábær, yndisleg og svo mætti áfram telja.
Haltu áfram að vera svona dugleg.
Knús, Inga.

 
At February 16, 2010 9:33 AM, Blogger Eygló said...

Æ takk, elsku Ingan mín :*

 

Post a Comment

<< Home