Bloggað til bata

Í mörg ár hef ég pirrast yfir því að vera flókatrippi með skakkar tennur. Ég hef pirrast út í krullur og freknur, hvíta, viðkvæma húð og þar fram eftir götunum. Og hvað hef ég grætt á þessum pælingum í gegnum árin ? Ég hef augljóslega sóað heilmiklum tíma til einskis og farið illa með sjálfstraustið mitt.
Núna er ég að einbeita mér að því að hugsa vel til sjálfrar mín- líkt og ég geri fyrir aðra. Ég er að læra að einbeita mér að því að þykja vænt um sjálfa mig því ég veit ég á það fyllilega skilið.
Ég er þakklát fyrir rauða hárið mitt og freknurnar sem ég fæ þegar sólin hefur skinið í andlitið. Ég ætla að sætta mig við það sem mér var gefið og hætta að reyna að troða mér í einhver form sem ég passa ekki í. Þetta á að sjálfsögðu einnig við um þyngd og fatastærðir. Ég ætla ekki að gera líkamanum mínum það að vera í einhverri þyngd sem er honum ekki heilbrigð og ég ætla ekki að ganga í óþægilegum fötum bara vegna þess að þau líta vel út. Ég vil hugsa vel um mig. Ég er búin að prófa hina leiðina og nú er kominn tími til að skipta um gír.
Nú veit ég að þetta kann að hljóma kjánalega því það er oft hægara sagt en gert að skipta svona um gír þegar ákveðnar hugsanir eru jafnvel orðnar svo rótgrónar að þær gerast bara sjálfkrafa. Það sem hefur hjálpað mér í þessum pælingum er að hugsa um allt sem skiptir mig máli í lífinu og forgangsraða. Ég á tvö yndisleg börn og frábæran mann og ættingja sem mér þykir undurvænt um. Ég vil vera góð fyrirmynd og ég vil koma auga á og rækta hæfileika mína. Þetta eru allt þættir sem eru miklu ofar á listanum og langt fyrir neðan allt þetta húkir átröskunin sem ég vinn hörðum höndum að við að henda langt, langt út í buskann.
Ég mæli eindregið með þessu. Þetta gildir einnig um matartíma. Það virkar oft vel fyrir mig að hugsa fallega til mín og leiða hugann að fólkinu mínu og fjarlægum draumum sem ég ætla mér að nálgast með batanum.
Hugsið fallega til ykkar, ég held ég geti lofað því að það skaðar ykkur ekki :)


10 Comments:
Elsku Eygló þú hefur alla tíð verið flott stelpa með fallega rauða hárið þitt og átt sko allt gott skilið. Haltu áfram að hugsa vel um þig því það eigum við öll að gera :)
Gló Gló mín þetta líkar mér þú ert æðisleg meira af þessu.
Þúsund risa knús gamla í sveitinni
Takk, Erla mín :)
Nafnlaus- mig langar svolítið að vita hver þú ert :)
Ég er ánægð með þig, auðvitað á maður að hugsa fallega um sjálfan sig. Enda ertu líka alveg einstaklega flott, falleg og hæfileikarík stelpa.
Ég hef oft hugsað þegar mér finnst ég vera með ljótuna og feituna og er að kvarta yfir því að vera svona og hinssegin, er þetta sem ég vil láta börnin mín heyra. Ég vinn að því hörðum höndum að halda sjálfstrausti þeirra jafn góðu og það er í dag, þar sem þeim finnst þau vera flottust, fallegust og geta allt. Þau heyra síðan héðan og þaðan að þau séu lík mér og hvaða ályktun eiga þau að draga ef ég sjálf er að kvarta yfir að vera svona og hinssegin.
Áramótaheit mitt er því að einbeita mér að góðu hlutina við mig í stað þeirra slæmu, þeir hljóta að vera töluvert margir fyrst ég gat eignast þessi flottu börn sem fá heilmikið frá mér ;)
Mér finnst þetta blogg þitt alveg frábært og það hefur opnað augu mín fyrir fullt af hlutum.
Gangi þér vel í bata þínum og haltu áfram að gera góða hluti.
Kv. Elsa júnímamma
Ég hef oft öfundað þig af fína rauða krullaða hárinu þínu :) - agnúast svo út í mitt liðaða ljósa hár ;)
Þú ert flott og frábær stelpa! Einstök!
*knús* á þig sætalína
- Ásta
Takk elsku Ásta og Elsa :)
Gott að heyra (lesa) um þessa hugarfarsbreytingu. Það ættu allir að tileinka sér þetta. Við erum oft sjálfum okkur verst, það er sorglegt en satt.
Ég segi það 100% satt að ég gæfi mikið fyrir háralitinn þinn, finnst hann ÆÐI! Þú ert svo falleg og fín alltaf, geisha eða ekki ;)
Bloggið þitt hefur opnað augu mín fyrir svo mörgum smáatriðum sem ég átti að vera fullmeðvituð um en hafði gleymt í asa hversdagsins. Þú ert að blogga okkur öll til bata held ég bara ;) Takk fyrir það :)
Kveðja, Oddný
Frábært að heyra, Oddný :) Tilgangurinn var einmitt að vera heiðarlegur og uppbyggilegur svo ég er ánægð með að það hafi skilað sér eitthvað áleiðis :)
Úps ! gleymdi að kvitta undir um daginn ekki líkt mér þín frænka Heiða Björg
Takk Heiða Björg, vissi að þetta væri einhver sem væri búinn að þekkja mig lengi, lengi :)
Post a Comment
<< Home