Army of me

Wednesday, March 10, 2010

Hvíti hesturinn

Hjúkrunarfræðingurinn minn í teyminu á Hvítabandinu er slökunarsnillingur. Einhvern veginn tekst henni alltaf að kreista út úr mér útskýringar á ótrúlegustu hlutum og myndmál í stíl þegar ég er nýbúin að stynja upp "ég veit það ekki". Raunin er nefnilega sú að yfirleitt þegar ég segi "ég veit það ekki" þá veit ég það samt. Ég hef bara annað hvort ekki gefið mér tíma til að hugsa um hlutina eða ég hef hreinlega ekki viljað horfast í augu við þá.

Í slökunartíma gærdagsins ræddum við um það sem ég þarf til að vaða síðustu pollana á leiðinni og ég veit alveg hvað það er. Mig skortir kjark. Ég hef öll hjálpartækin í höndunum, það eru allir boðnir og búnir að leiða mig síðustu metrana en ég hef verið efins og óttaslegin.

Við hvað er ég svona hrædd ? Verður lífið eitthvað verra þó ég slefist í mark og nái kjörþyngd ? Hverju breyta örfá kíló í viðbót? Ég get eiginlega ekki svarað þessu almennilega en það að ég skuli óttast jafn saklausan hlut lýsir því kannski best hvað sjúkdómurinn getur verið órökréttur stundum. Ég get verið svakalega skynsöm og dugleg en ég get líka orðið þrjósk, þver og hræðilega óskynsöm þegar sjúkdómurinn tekur völdin.

Þetta er erfitt ferli og í raun nær ómögulegt að útskýra það fyrir þeim sem þekkja ekki til þess. Starfsfólkið í teyminu talar stundum um skilnað frá átröskuninni. Það er því eðlilegt að upplifa ótta, kvíða, sorg og söknuð í þessu ferli þar sem við erum jú að skilja við eitthvað sem við höfum hingað til haldið fast í. Þessar tilfinningar hafa allar bankað margsinnis uppá hjá mér í meðferðinni með tárum, pirringi og reiði en það þýðir bara að ég sé á réttri leið :) Ég þarf bara að halda þetta út þó stígurinn sé stundum ansi grýttur. Svo birtir upp að lokum.

En aftur að slökunartíma gærdagsins. Eftir að ég fann það út að það væri kjarkleysið sem stoppaði mig, fór ég, með aðstoð hjúkrunarfræðingsins míns, að leita að kjarkinum mínum því hann er jú þarna einhvers staðar. Ég komst að því að kjarkurinn minn er í gervi hvíts hests sem ég var búin að tjóðra í litlum bakgarði úti í sveit. Það var því ekkert annað að gera en að leysa hestinn úr prísundinni og biðja hann að leiða mig áfram. Í huganum gekk ég því á eftir þessum ævindýralega hreina, hvíta hesti í gegnum dimman, þykkan frumskóg þar sem ægði saman öllum kynjaverum sem mér datt í hug að hrúga niður en fyrir enda skógarins skein sól. Þar var grasi gróin laut, algjör kyrrð, blóm, sólskin og hlýja. Þessi laut táknar batann minn.

Ég veit að sumir kunna að hrista höfuðið við lestur þessara lýsinga en það er þá víst lítið sem ég get gert við því ;) En svona sé ég þetta bataferli ef mér er uppálagt að setja það í orð og myndlíkingar. Sem ægilegan frumskóg en batinn þeim mun yndislegri. Og kjarkurinn, í holdgervi fullvaxins hests, hlýtur því að vera nokkuð mikill ef að er gáð.

Eins og ég hef áður sagt; ég hef þetta allt í hendi mér, ég hef öll tækin og mér er ekkert að vanbúnaði lengur. Nú þarf ég bara að elta hestinn minn síðustu metrana í mark.

9 Comments:

At March 10, 2010 8:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló mín ég veit þú getur þetta þú hefur þetta allt í þér :)

knús Linda

 
At March 11, 2010 10:17 AM, Blogger Eygló said...

Takk elsku Linda mín ! :)

 
At March 11, 2010 4:29 PM, Anonymous Anonymous said...

Mamma er stuðningsmaður nr. 1
Love you

 
At March 11, 2010 6:34 PM, Anonymous Anonymous said...

Ef hvíti hesturinn hefur svo mikið sem helminginn af þínum kjarki, dugnaði og elju þá gæti hann leitt hvern sem er að settu marki. Þú átt nefnilega miklu meira af þessu en þú heldur :)

Ég hlakka til að vita af þér í sólbaði í grænu lautinni :*

Kveðja, Oddný

 
At March 14, 2010 2:50 PM, Blogger Eygló said...

Takk elsku mamma og takk elsku Oddný ! :):) :*

 
At March 16, 2010 8:12 AM, Anonymous Anonymous said...

Risaknus!!!
xx
T

 
At March 16, 2010 1:03 PM, Blogger Eygló said...

Takk elsku besta T mín :*

 
At March 18, 2010 1:23 PM, Anonymous Anonymous said...

Ekki leiðinlegt að vita að það er hvítur hestur sem leiðir þig áfram eitthversstaðar stendur þú komst í hlaðið á hvítum hesti þú komst með vor í brjósti þér.Er vissum að það er líka hjá þér er viss um að kalli mínum myndi líka að það væri hestur sem leiddi þig áfram
risa stórt knús til þín elsku dúllan mín
gamla í sveitinni

 
At March 19, 2010 2:02 AM, Blogger Eygló said...

Takk elsku Erla mín :)

 

Post a Comment

<< Home