Army of me

Friday, February 26, 2010

Um konuna í speglinum

Það er kona í speglinum mínum á ganginum. Ég hef verið vond við þessa konu í langan tíma. Ég hef rakkað hana niður fyrir allt sem miður fer og skellt skuldinni á hana hvenær sem færi gefst.

Ég hef ekki viljað taka gagnrýnisgleraugun af nefbroddinum til að skoða þessa konu í réttu ljósi. Í gegnum tíðina hefur mér þótt betra að skoða hana í rökkrinu og ímynda mér hitt og þetta sem ég þykist sjá, vita og skynja.

Nú er komið gott af þessari hegðun og tími til kominn að kveikja ljósið og opna augun. Ég sé konu sem stundum er sterk og stundum brotin og kramin. Ég rýni í hverja áhyggjuhrukku og skoða líka broshrukkurnar og pínulitlu, næstum ósýnilegu freknurnar á skjannahvítri húðinni. Ég skoða hárið, andlitsdrættina, líkamann í heild og geri mér far um að hugsa jákvætt um það sem ég sé, líklega í fyrsta skipti í mörg ár.

Ég þarf nefnilega að temja mér aukið umburðarlyndi gagnvart þessari konu. Hún má fá eina bólu án þess að allt sé ónýtt. Hún má misstíga sig og hún þarf ekki að gera allt alveg 100% til að hlutirnir verði í lagi. Hún má vera mannleg, finna til, njóta lífsins og gera það sem hana langar til. Núna ætla ég bara að skoða þessa konu í speglinum þegar mig langar að gera hana fína eða hrósa henni.

Ég geri mér grein fyrir því að þessi kona sem stendur fyrir framan mig er ekki hluti af mér, hún er ég sjálf. Og allt sem er rotið innra með mér er sjúkdómurinn sem ég vinn hörðum höndum að við að útrýma fyrir fullt og allt.

Ég má vera til. Og þið öll líka.

13 Comments:

At February 26, 2010 11:42 AM, Anonymous Anonymous said...

Sæta frænka mín, þú ert svo mikill snillingur! Ég fer yfirleitt í þvílíka sjálfsskoðun þegar ég les bloggið þitt því það fær mann alltaf til að staldra við og hugsa. Knús til þín, kveðja DYG :)

 
At February 26, 2010 11:43 AM, Blogger Eygló said...

Frábært, þá er takmarkinu mínu náð ! :) Knúsur á þig, sæta frænka :)

 
At February 26, 2010 3:25 PM, Anonymous María Rún said...

Langar að senda þér knús :* þú ert frábær eins og þú ert, leyfðu þér að sjá það í speglinum.

p.s. frábærlega vel að orði komist eins og þér einni er lagið.

 
At February 26, 2010 3:58 PM, Blogger Eygló said...

Takk, María Rún !! :)

 
At February 26, 2010 4:40 PM, Anonymous Anonymous said...

Þér tekst alltaf að orða allt svo snilldarlega, einstakur penni! :)

Ég er virkilega ánægð með að þú ætlir að vera betri við þessa fallegu konu í speglinum, hún á nefnilega allt það besta skilið! :*

Knús, Oddný

 
At February 26, 2010 4:43 PM, Anonymous Anonymous said...

"Hvort sem þú telur þig geta það eða ekki, þá hefur þú rétt fyrir þér" .. ég veit að þú getur allt sem þú ætlar þér skvís. Tek undir með Odndýju, líður betur að vita að þú ætlir að temja þér að vera betri við flottu konuna í speglinum - hún á allt gott skilið :)

Góða helgi

kv. Ásta

 
At February 27, 2010 3:54 AM, Blogger Eygló said...

Ohh ég bráðna alveg í spað hérna! Takk fyrir sætu orðin, yndislegu stelpurnar mínar ! :)

 
At February 27, 2010 5:27 AM, Anonymous Anonymous said...

Eygló mín þú ert snillingur og bara snillingur,frábær penni að venju.
Eg veit að konan í speglinum er gegngóð og flott bara ef þú tekur ofan slæmu gleraugun og setur þau aldrei upp aftur þessi glæsikona sem þú sérð er bara æðislegur gullmoli Risa knús
gamla í sveitinni

 
At February 27, 2010 9:53 AM, Blogger Eygló said...

Takk, elsku Erla mín ! :)

 
At February 28, 2010 12:56 PM, Blogger Unknown said...

Yndislega vel orðað hjá þér ljúfan! :)

 
At February 28, 2010 2:22 PM, Blogger Eygló said...

Takk, sæta :)

 
At March 01, 2010 3:08 AM, Anonymous Anonymous said...

Konan í speglinum þínum er svo sæt og fín en þó er hún ennþá flottari að innan sem ekki sést í speglinum en ég veit það því ég þekki hana heppna ég :) Mér þykir óendalega vænt um þig, þín Heiða Björg

 
At March 01, 2010 10:38 AM, Blogger Eygló said...

Takk elsku Heiða Björg - mér þykir líka undurvænt um þig :)

 

Post a Comment

<< Home