Vonda og góða vinkonan...

Þú segist vera vinkona mín og þú segir að þú viljir eiga mig ein. Ég má ekki tala við neinn annan því þá verður þú öfundsjúk og grimm við mig og segir að ég sé að skilja þig útundan. Ég hef verið veikburða og ég hef alltaf komið aftur, alltaf trúað því að þú ætlir að vera góð við mig. Þegar þú svo bítur mig og klórar og segir við mig ljóta hluti, sé ég eftir því að hafa látið eftir þér.
Ég get ekki kallað þig vinkonu mína. Ég vil ekki eiga vinkonur eins og þig.
Mig langar mikið frekar að eiga vinkonur sem leyfa mér að vera ég sjálf. Vinkonur sem geta hlegið með mér og notið lífsins og þess sem það hefur upp á að bjóða. Ég nenni þessu sambandi ekki lengur.
Ég fékk ráðleggingu um það á Hvítabandinu að persónugera átröskunina og skrifa til hennar bréf. Svona sé ég minn sjúkdóm- eins og vinkonu sem heldur mér í heljargreipum og gerir ekkert annað en að særa mig og brjóta mig niður. Ég ákvað að gerast svo djörf að skrifa þetta bréf hér beint á bloggið mitt í von um að mín sýn geti gagnast einhverjum öðrum. Það er alltaf huggun ef reynsla mín getur orðið til góðs.
Ég er ansi sveiflukennd þessa dagana. Ég á góða og slæma daga og hef undanfarið þurft að hafa svolítið fyrir batanum. Ég finn það samt stöðugt betur að ég hef gott fólk í kringum mig, ég bæði sé það á kommentum hér á blogginu og í einkaskilaboðum en eins finn ég í "kjötheimum" hvað það eru margir boðnir og búnir að hjálpa mér, bæði á Hvítabandinu og utan þess. Ég er óendanlega þakklát fyrir það :)
Í dag eftir meðferðina fór ég á kaffihús með einni vinkonu minni úr meðferðinni (og batabombu með meiru) og átti gott spjall við hana. Við röltum saman í ísköldu vorveðri niður í bæ og fengum okkur kaffi og meira að segja köku líka :) Mér finnst gott að halda sambandi við fólk sem er í svipuðum sporum og ég sjálf- sérstaklega þegar batinn hefur bankað uppá. Við gátum rætt saman á uppbyggilegan hátt og stutt hvora aðra. Ég get alveg óhikað mælt með því- það eru svoleiðis vinkonur sem ég vil halda í ;)
Knúsur á línuna !


8 Comments:
Bara láta vita af mér, ég geymi gullmola sem þú átt ásamm eiginmanni og dóttur. Við höfum það gott erum að fara að lúlla saman (gullmolinn er að vísu löngu sofnaður) Og hér á bæ ert þú elskuð eins og þú ert og hefur alltaf verið, og ég get sagt þér það augliti til auglitis alltaf og alltaf. Elska þig óendanlega mikið.
mamma
Takk mamma mín, ég elska þig líka :-) Knúsaðu gullkálfinn frá okkur!
Knús Eygló mín, þú ert að standa þig eins og hetja! Stolt af þér :)
Bestu kveðjur,
Tinna
Æ takk Tinna krútt :)
Þú ert svo dugleg Eygló. Ég á ekki til orð yfir þeim styrk sem þú sýnir með því að skrifa allt svona á bloggið þitt. Ég dáist að þér.
Knús.
Heiða bekkjarsys
(P.s. ég óska eftir hríðastraumum! Get ekki beðið lengur eftir Krílfríði) ;)
Takk, Heiða - ég er svo mikið allt eða ekkert ;) fyrst ég skrifa á annað borð, þá geri ég það bara með stæl ;)
Fuuuullt af hríðarstraumum til þín ! Set húfurnar í póst eftir helgi og þá kemur hún örugglega híhí ;)
Knús á þig flotta kona! Vonandi fer "vinkonan" að hypja sig .. þú veist hvar mig er að finna .. ef þú þarft.
kv. Ásta
Takk, Ástan mín :)
Post a Comment
<< Home