Gott og slæmt

Hvað er mikið af góðum augnablikum í einum degi ? Hvað er mikið af afleitum augnablikum í einum ósköp venjulegum degi ? Af hverju er svona auðvelt að týna góðu andartökunum í öllu sem er ekki eins og best verður á kosið ?
Ég er farin að standa mig að verki við þessa iðju ansi reglulega. Þá einblíni ég á eitthvað sem að mínu mati er ekki nógu gott og það verður til þess að skuggi varpast yfir allt sem er gott og ásættanlegt. Ég semsagt gleymi því sem er gott og jákvætt en hangi svo í einhverju hundleiðinlegu eins og það sé síðasta hálmstráið ! Verulega skökk hugsun, finnst mér.
Þessa dagana er ég að reyna að grípa þessar hugsanir þegar þær koma og skoða fleiri en eina hlið málsins. Oftar en ekki get ég fundið eitthvað jákvætt en nú þarf ég að æfa mig í því að gefa því jákvæða meira vægi en þessu sem ekki er eins gott. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og ég er haldin "strax veikinni" á háu stigi svo þetta getur verið þungur róður!
Þetta kemur samt örugglega með kalda vatninu, eins og einhver sagði. Ég neita að vera þræll neikvæðra og niðurdrepandi hugsana þar til yfir lýkur!


2 Comments:
Flotta fína stelpurófa :) Þú ert komin á bataveg þegar þú fattar sjálf að hugsunin sé röng ;) Áttu ekki "HAM" blað til að nýta þegar neikvæðar hugsanir taka yfirhöndina? Það virkar oft vel fyrir mig ;) það er eins og maður þurfi sjálf að tala sig til, og sjá þennan pínulitla óljósa jákvæða punkt/blett.
Gangi þér sem best *knús*
-ásta
Jú ég er að verða algjör HAM snilli híhí ;)knús á móti ! :)
Post a Comment
<< Home