Army of me

Saturday, August 21, 2010

Ör eða skemmdir ?

Ég geri mér ekki alltaf grein fyrir því hversu nálæg Veikgló raunverulega er. Sjúkdómurinn felst að miklu leyti í samanburðinum - að sjá bara þá sem eru "fullkomnir" í kringum mig, að líða illa í stórum hóp þar sem allir eru betri en ég. Sjúkdómurinn felst einnig í því að setja sér lífsreglur sem erfitt eða ómögulegt er að framfylgja, að vera sífellt að reyna að vera 100% í öllu.

Þrátt fyrir að batinn hafi bankað uppá finn ég að þetta er vinna sem ég þarf að sinna áfram, ég má ekki sofna á verðinum því þá er voðinn vís. Ég veit að það eru hlutir sem ég þarf að forðast, til dæmis megrunarumræður og tískublöð og ítarlegar innihaldslýsingar.

Stundum fer þetta ferlega í taugarnar á mér. Mér finnst ég vera á einhvern hátt gölluð eða "örótt" og skemmd eftir veikindin. Ég veit samt að ég má vera þakklát fyrir að vera þar sem ég er í dag, ég má þakka fyrir að hafa komist þennan veg. Einhverra hluta vegna er bara svo oft auðveldara að ergja sig á því sem er ekki nákvæmlega eftir eigin höfði heldur en þakka fyrir það sem vel er gert.

Ég þarf ennþá að stoppa mig af og reyna að beina huganum aftur á beinu brautina, stundum oft á dag. Og stundum tek ég ekki eftir því að ég er að fara út af sporinu.

Þetta blogg er frekar innihaldslaust og sundurslitið að þessu sinni. Ég held ég hafi bara þurft að koma því til skila - bæði til mín og til þeirra sem kannski lesa þetta blogg, að þetta er bölvuð vinna en hún er þess virði því það er svo mikið í húfi. Ég get alveg verið dugleg í einhverju öðru en að brjóta mig niður. Í raun er fáránlegt til þess að hugsa að það hafi verið að eina sem ég taldi mig færa í.

Svo kannski, og líklega, er ég örótt en skemmd er ég ekki. Ég er reynslunni ríkari og ég öðlast meiri reynslu með hverjum deginum sem líður.

7 Comments:

At August 22, 2010 11:21 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló þú ert HETJA að komast í gegnum allt sem þú hefur komist í gegnum og þú munt komast í gegnum þetta við þurfum að vinna í þessu alla daga alltaf minna okkur á að við getum þetta því við getum það forðast allt sem sem sem er ekki hollt og gott fyrir okkur svo mikið er víst ástin mín :o)

þú ert engill takk fyrir að leyfa mér að kynnast þér elskan mín og mundu þú ert HETJA :)

 
At August 24, 2010 4:45 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló! Þú ert svo góð í svo mörgu :) Ekki fara í master í niðurrifsstarfsemi - þú ert allt of frábær og flott til þess :) Alger perla og meira til.

Ef þú þarft einhvertíman spjall, öxl, eyra eða hvað sem er veistu að þú getur leitað til mín - hvenær sem er! :)

Tek undir með fyrrum kvittara ... takk fyrir að leyfa mér að kynnast þér :)

Knús og kram
Ásta

 
At August 24, 2010 5:10 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló mér hefur alltaf fundist þú svo frábær og svooo margt til lista lagt haltu áfram að vera eins og þú ert knús frá frænku

 
At August 25, 2010 11:58 AM, Anonymous Anonymous said...

"Þú ert VÍST! fullkomin eins og þú ert". Tilviljun eða ekki ég var að hengja svona grænann miða á baðherbergisspegilinn í gær. Þú ert algjör hetja, fólk getur ekki ímyndað sér hvað þú hefur afrekað með allri þeirri vinnu sem þú hefur og ert enn að leggja á þig. Við erum sterkar en við þurfum að berjast á hverjum degi.
Þetta er rosa sundurleit komment en elsku Eygló mín, þú ert svo frábært og eins og minnst er á hérna fyrir ofan þú ert HETJA!!!

Kveðja Helga

 
At August 25, 2010 1:00 PM, Blogger Eygló said...

Jeminn, takk fyrir frábær og falleg komment, stelpur! Ég var ekki einu sinni viss um að það væri nokkur að lesa bloggið mitt ennþá :) mér finnst alltaf jafn gott að blogga og það að fá svona frábært "feedback" á bloggið er alveg meiriháttar!! :)

 
At August 28, 2010 2:55 PM, Anonymous Anonymous said...

Tek undir með fyrri ræðumönnum þú ert góð í svo mörgu, til dæmis ertu rosalega góð í að vera vinkona! ;)

Farðu vel með þig sæta, þú átt það svo margfalt skilið :*

Kveðja, Oddný

 
At August 28, 2010 4:18 PM, Anonymous Ranný said...

Elsku frænka þú ert svo frábær penni, haltu endilega áfram að blogga :) og mundu að hugsa jákvætt það er léttara.

Bestu kveðjur Ranný

 

Post a Comment

<< Home