Batablogg

Þetta er búið að vera svo erfitt ferðalag, ég ætla ekki að ljúga því. Þetta hefur verið mikil vinna og ég hef nánast á hverjum degi háð harða baráttu við allskonar púka sem hafa hlammað sér á axlirnar á mér og ætlast til þess að ég lúti að vilja þeirra eins og ég hef gert í svo langan tíma. Það kom bara á endanum að því að ég gat nýtt alla mína þrjósku og ákveðni til góðs. Ég get nefnilega verið dugleg þegar ég þrái eitthvað nógu heitt. Batinn var eitthvað sem ég var farin að þrá en óttaðist í upphafi að ég myndi aldrei ná á leiðarenda.
Núna sé ég að allir erfiðu dagarnir, allar hindranirnar, allir smásigrarnir og jafnvel allar litlu gjóturnar á leiðinni hafa leitt mig hingað. Það var semsagt, eftir alltsaman, tilgangur með þessum dögum sem mér fannst að hefði helst átt að stroka út af dagatalinu og mikið er það skemmtileg hugljómun !
Í vigtun í gær kom í ljós að ég er ekki lengur í undirþyngd, ég er komin í neðstu mörk kjörþyngdar minnar og það var ekki eins mikið áfall og ég hafði búist við. Ég veit einfaldlega núna að ég er ekki að fitna - ég er að endurheimta sjálfa mig, endurnærast..verða ég sjálf. Það sem talan á vigtinni segir á að vera aukaatriði og ég ætla að halda fast í þá hugsun. Það eru svo margir hlutir í lífinu sem skipta mig meira máli en að beita sjálfa mig óhollum og niðurbrjótandi heraga og ég neita að vera fangi þessa sjúkdóms lengur.
Ég einbeiti mér þessa dagana að því að hlusta á hvað mig virkilega langar að gera - hvað mig langar að borða, óháð orkugildinu og ég reyni á hverjum degi að útrýma allskonar fáránlegum kröfum og reglum. Þetta er farið að ganga nokkuð vel en hefur rifið í á stundum. Ég hef þurft að hafa fyrir þessum bata og það gerir hann fyrir vikið mun sætari og eftirsóknarverðari.
Ég geri mér grein fyrir því að þó að mestu torfærurnar séu að öllum líkindum að baki, verð ég að halda áfram að vera vakandi fyrir freistingum og hættumerkjum. Mér finnst nærtækast að líkja þessu ástandi við það að hafa í langan tíma verið með blæðandi sár sem nú er tekið að gróa. Nú þarf ég að passa að kroppa ekki í sárið því ég vil ekki að það fari að blæða aftur. Það er eðlilegt að ég sé ef til vill veik á svellinu ennþá en á meðan ég er meðvituð um það hef ég trú á því að allt muni fara á besta veg.
Mig langar ekkert að fara aftur í sama gamla farið þó af og til poppi upp fáránlegar hugsanir sem ég er að verða nokkuð lunkin við að kýla kaldar niður jafnharðan.

Ég er óendanlega þakklát fyrir alla hjálpina sem ég hef fengið. Fólkið á Hvítabandinu á hrós skilið fyrir þolinmæði, hlýju og skilning. Þar hefur verið stutt við bakið á mér bæði þegar ég hef átt góða daga og slæma. Svo er ég líka heppin að hafa haft ykkur, blogglesendur mína hérna á hliðarlínunni og yndislegu fjölskylduna mína og ættingja og vini.
Þetta er líklega farið að hljóma örlítið eins og Óskarsræða en ég er bara svo þakklát og mér finnst ég þurfa að koma því á framfæri :) Það er ekki sjálfgefið að hafa einhvern sem stendur með þér í gegnum súrt og sætt - hvað þá svona marga! Ég er endalaust heppið flókatrippi :)
Nú er ég búin að flakka út um víðan völl en boðskapurinn er þessi : Þegar stígurinn er grýttur og torfær, mundu þá að það er leið út úr þessu öllu. Ég lofa :)
Knúsur
Batabomba


20 Comments:
Takk fyrir að vera til, og vera eins og þú ert.
Þúsund kossar
mamma sín..
Eygló indislega flókatrippið mitt
þetta er ótrúleg lesning.Mikið vildi ég að ég gæti knúsað þig núna.
Ég er svo glöð að fá þessar fréttir
að það liggur við að ég tárist af gleði vissi altaf að þú gætir þetta held áfram að kíkja á bloggið
risa knús gamla í sveitinni
JÁ ÞAÐ VAR RÉTT!! Svo stolt af þér hetja!! Þú átt þetta svo innilega skilið eftir allan barninginn við púkana. Verðum að hittast og dreifa öskunni þeirra ofan í eldgíginn á Eyjafjallajökli. Mundu svo eftir Bata öryggisskónum!:D
AnnaBerg
Góð hugmynd, AnnaB ! :) Við ættum kannski að fjölmenna og dreifa öskunni saman, allar batabomburnar :) Og að sjálfsögðu í Bata öryggisskónum ! :D
Og elsku mamma og Erla- takk fyrir fallegu kommentin, báðar tvær :*
Yndislegt! Þú getur ekki ímyndað þér hvað það er gott að lesa þetta, vita að þér líði betur. Þú ert hetjan okkar allra, búin að standa þig svo vel! :*
Kv. Oddný
Æ takk elsku Oddný mín !! :)
Óskarsræða eða ekki...flottasta ræða sem ég hef lesið. Innilega til hamingju með þennan stórkostlega áfanga og gangi þér áfram sem best flottust !!
kv. Ester
Takk, elsku Ester :)
Dýrðlegt! Gleður mitt litla vinkonu hjarta mikið að lesa þetta blogg :)
Ég hef fulla trú á þér og því sem ég veit að þú getur afrekað!
kv. Ásta
Takk, elsku Ástan mín :)
Þú ert svo flott elsku Eygló mín, mikið er yndislegt að lesa þennan pistil :) ...áfram svona!!!
Vor og blómaknúsar, Jóhanna.
ÞÚ ERT HETJA EYGLÓ :o)
Bara fór að gráta við að lesa þetta en þetta er svo rétt hjá þér þú ert BATABOBA :)
Riza knúz Linda c*,)
Takk elsku Jóhanna og Linda ! :* jii hvað ég þekki mikið af krúttlegu fólki !! :)
Frábært að þér skuli líða vel elsku Eygló mín enda ertu svo frábær stelpa :)
Þúsund kossar, Heiða Björg
Æðislegt að lesa svona góðar fréttir elsku Eygló. Eins og hinar hafa sagt þá ertu algjör hetja!!
Risaknús á þig dúllan mín.
Inga.
Við erum sko BATABÚÚÚMBUR og ekkert minna !!!
Kveðja
Helga Katrín
Takk, allar :*
Já Helga Katrín, við erum sko batabúmbur með mörgum ú-um :D
Elsku Eygló þú ert og verður alltaf langflottust :) Þú ert rosalega dugleg og ég er stolt af þér hvað þú ert sterk og ákveðin. Þú ert alltaf þú og enginn á að geta haft áhrif á það sem þú vilt skottan mín :) Haltu áfram að renna þér eftir batabrautinni,hugsa til þín :)
Risa knús á þig sætan mín
Sigrún Inga
Takk fyrir sæta kommentið, Sigrún :)
Post a Comment
<< Home