Army of me

Monday, June 07, 2010

Áfram bati og nýjar fréttir !

Það var nú ekki ætlunin að yfirgefa bloggheima alfarið þó batinn hefði loks bankað uppá. Ég hef bara einhvern veginn ekki haft mig í það að blogga og mér hefur ekki fundist ég hafa neitt gáfulegt að segja undanfarið.
Ég útskrifaðist úr meðferðinni um miðjan maí og dagarnir eftir útskrift hafa gengið furðuvel. Fyrsta vikan fór aðallega í skipulagsleysi og ég finn það alveg að ég þarf svolítið að passa upp á reglur og rútínur til að gleyma mér ekki og detta inn í spíral sem erfitt er að brjótast út úr aftur. Ég hef þó náð mér aftur á gott strik eftir þessa kæruleysislegu viku og hef verið ótrúlega dugleg að borða.

Það kemur samt auðvitað svolítið tómarúm þegar svona mikilli meðferð lýkur. Ég hélt ég myndi upplifa einhvers konar frelsi en í stað þess upplifði ég svolítið öryggisleysi og varð pínulítið smeyk við að þurfa að bera ábyrgð á mér sjálf aftur. Sem kann að hljóma undarlega hjá næstum þrítugri konu en svona er þetta bara ;)

Ég er enn í fullum bata og stefni á að vera það áfram. Auðvitað banka ýmsir púkar uppá af og til og minna á sig, biðja mig að koma að leika og stundum staldra ég við og finnst ég þurfa að hugsa mig um en ég hef ekki valið að fara aftur í svaðið og er svo sannarlega ekki á þeim buxunum að velja þá leið aftur. Það er helst þyngdaraukningin sem angrar mig stundum og stundum þarf ég að minna mig á að það sem áður var "bannað" er barasta ekkert bannað lengur !

Lífið mitt hefur í raun tekið óvænta stefnu miðað við framtíðarsýn mína fyrir ca. ári eða svo. Ég nýt þess að vera með börnunum mínum og manni og þessa dagana blómstra ég fram á við þar sem von er á nýjum einstaklingi í fjölskylduna í nóvember. Þetta verður vissulega álgastími fyrir sjúkdóminn sem áður blómstaði eftir meðgöngur en í þetta sinn fer ég betur undirbúin i þetta alltsaman og ætla mér ekki að falla í sömu gryfjuna. Nú hef ég öll tæki sem ég þarf á að halda - ég þekki einkennin og kann að tækla þau, auk þess sem ég hef fagfólk til að leita til ef allt um þrýtur.

Ef allt gengur upp með pappíramál byrja ég líka að vinna bráðlega fram að fæðingu og aftur eftir fæðingu og er mikið sátt við það. Mér finnst ég vera búin að rétta úr kútnum og eins og allt sé á uppleið aftur. Það er yndisleg tilfinning !

Hafið það gott í sumarsólinni :*

22 Comments:

At June 07, 2010 6:52 AM, Anonymous Anonymous said...

Frábært að heyra Eygló! Þú ert ótrúlega dugleg og ég er mega stolt af þér :*

Til hamingju aftur með berið og ég hlakka til að sjá hann/hana :D

-Erla

 
At June 07, 2010 7:02 AM, Blogger Eygló said...

takk sætan mín ! :*

 
At June 07, 2010 9:02 AM, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju Ógley mín ;p og ég vildi þakka þér fyrir bloggið. Ég eiginlega þurfti akkurat á því að halda að lesa eitthvað jákvætt. Þarf pínku að muna að sparka í rassinn á mínum eigin púkum. Gangi þér vel sæta
kveðja
Helga Katrín

 
At June 07, 2010 9:07 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Helga Katrín :) Já það getur verið voða gott að lesa eitthvað uppbyggilegt af og til - gott að rifja upp með reglulegu millibili hvert við erum komnar og hvað það kostaði mikla vinnu. Væri fúlt að glutra því niður. You can do it, sæta! :)

 
At June 07, 2010 10:39 AM, Blogger pepsimax said...

Til hamingju elsku Eygló mín með lífið og tilveruna! Þetta var góð lesning og frábærar fréttir :)
Gangi þér áfram vel :)
Bestu kveðjur,
Tinna

 
At June 07, 2010 10:39 AM, Blogger pepsimax said...

Til hamingju elsku Eygló mín með lífið og tilveruna! Þetta var góð lesning og frábærar fréttir :)
Gangi þér áfram vel :)
Bestu kveðjur,
Tinna

 
At June 07, 2010 11:54 AM, Blogger Eygló said...

Takk takk (tvöfalt sko hehe) elsku Tinnhildur ! :)

 
At June 07, 2010 1:56 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég held áfram að dást að þér, segi eins og Erla, ég er svo stolt af þér! :)

Hlakka til að sjá litla gullmolann :)

Kv. Oddný

 
At June 07, 2010 2:15 PM, Anonymous Anonymous said...

Auðvitað komstu yfir þetta, hafði sko trölla-trú á þér og er búin að vera að bíða eftir þessu bjarta bloggi í góðan tíma :)Þú ert hetja mín kæra, láttu engan segja þér neitt annað :) Hlakka til að sjá nýjasta gullið, ekki er ég hissa á því að 3ja sé á leiðini enda ekki hægt að hætta þegar maður fær svona æðisleg eintök eins og Ísak Aron og Agnes Harpa eru :) Búin að sakna þín allt of lengi, nú förum við að hanga soldið í búðunum eftir vinnu með erfingjana með okkur ;) Knús í hús færð bráðum knús-afslátt 5 fyrir 4 hahaha =Þ

 
At June 07, 2010 2:17 PM, Anonymous Anonymous said...

hmmmm..... gleymdi að kvitta undir, en geri það hér með :) María Ösp =Þ

 
At June 07, 2010 3:17 PM, Blogger Eygló said...

Takk, Oddný og María ! :*

/P.s kommentakerfið er með einhverja stæla hjá mér svo kommentið mitt kom þrisvar inn áðan, þess vegna stendur deleted by author).

 
At June 08, 2010 1:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Yndislegt blogg og ynddislegar fréttir! :) Til hamingju aftur :)

Það var rosa gott að sjá þig um daginn! Hlakka til næst :) (þá verður nafna þín kannski vakandi smástund) ;)

Knús!
Heiða bekkjarsys

 
At June 08, 2010 4:22 AM, Blogger Eygló said...

Já Heiða, ég panta að hún verði vakandi í pínu stund næst svo ég geti fengið að knúsa hana aðeins :) Hún er algjör rófa!! Fylgir nafninu sko..haha ;)

 
At June 08, 2010 7:38 AM, Anonymous Anonymous said...

Æðislegar fréttir...svona rétt inn í sumarið - gæti það nokkuð verið betra!! :) Þú verður að vera dugleg að pósta bumbó myndum af þér í haust og þegar litla krílið lætur sjá sig! ...yndislegt! :D
Blómaknús!

 
At June 08, 2010 7:39 AM, Anonymous Anonymous said...

...Jóhanna ;)

 
At June 08, 2010 9:08 AM, Blogger Eygló said...

Takk, Jóhanna sæta :)

 
At June 09, 2010 7:49 AM, Anonymous Anonymous said...

Vááá til hamingju frábærar fréttir geggjað að allt gegngur vel hjá þér Eygló þú ert sannkölluð BATABOBA og að koma með lítið kríla allt að gerast þú ert æðiiiiiiiiiiii til hamingju með það líka :):):):):):)

knúz og kossar Linda

 
At June 09, 2010 11:55 AM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló til hamingju með væntanlegan erfingja...yndislegt...gangi þér ofsalega vel
kv Eva Hrönn

 
At June 10, 2010 1:56 PM, Blogger Eygló said...

Takk, elsku Eva og Linda ! :*

 
At June 10, 2010 6:38 PM, Anonymous Anonymous said...

En gott að lesa nýtt og jákvætt blogg =) Enn og aftur segi ég að ég hef fulla trú á þér og því sem þú getur afrekað og munt afreka! Til hamingju með erfingja 3 - tek undir að það er varla hægt að stoppa þegar maður á svona flott eintök eins og ÍA og AH ;) Gangi þér vel skvísa

-Ásta

 
At June 13, 2010 3:20 PM, Blogger Eygló said...

Takk, Ásta :)

 
At July 05, 2010 1:29 PM, Anonymous Anonymous said...

Love jú sæta... Ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt.. miss jú ótrúlega mikið.. þú verður að kíkja í heimsókn.. pant það :D

xxx Elín :)

 

Post a Comment

<< Home