Hold mitt og blóð
Þau eru öll svo lík en á sama tíma svo ólík. Hvert með sinn karakter og það er yndislegt að sjá þau læra að fóta sig í lífinu.
Ísak Aron er frumburðurinn okkar. Hann er 8 ára í dag og mér finnst ótrúlegt til þess að hugsa að svo langur tími sé liðinn síðan við urðum foreldrar í fyrsta skipti.
Ég man hvað Anton keyrði hægt heim af fæðingardeildinni, varkár faðir með glænýjan einstakling í bílnum. Á þeirri stundu urðum við fullorðin, lærðum að sinna öllum þáttum er lúta að uppeldi lítils barns. Vaka á nóttunni þegar hann var lasinn, hitta barnalækna, mæta á foreldrafundi og svo framvegis. Nú er hann að verða að ungum manni, farinn að spá svo mikið í lífið og tilveruna, hafa sjálfstæðar skoðanir og æfa handbolta af miklum móð. Hann er stóri drengurinn okkar sem stundum er lítill. Drengurinn sem leiðir mömmu sína en sleppir takinu þegar vinir hans nálgast. Litli drengurinn sem finnst gott að fá tánudd frá mömmu og eiga kósýkvöld með foreldrum sínum um helgar. Stóri drengurinn sem sendir sms og hlustar á rokktónlist.
Ísak Aron er sveimhuginn í barnahópnum okkar, dreyminn og gleyminn og stundum á annarri plánetu. Ótalmargar húfur og vettlingar hafa glatast og einu sinni kom hann allt of seint heim úr skólanum vegna þess að hann festi skóinn sinn uppi í tré. Snillingur út í gegn !
Í honum er ekkert vont bein, hann finnur til með þeim sem minna mega sín og er oftast tilbúinn að fórna sér fyrir þá. Lítil börn og dýr eiga hjá honum öruggt skjól. Elsku litli stóri strákurinn okkar.
Agnes Harpa er miðjan okkar og eina stelpan í hópnum. Hún skaust í heiminn á methraða, foreldrum sínum og ljósmóður til mikillar undrunar. Við mættum upp á fæðingardeild eldsnemma morguns, nokkuð róleg og yfirveguð og óraði ekki fyrir því að svo stutt væri í dömuna sem var fædd klukkutíma síðar. Hún fæddist 2 vikum eftir settan dag en þegar fæðingin fór af stað, gekk allt á ógnarhraða. Það er svolítið lýsandi fyrir Agnesi Hörpu. Þegar hún vindur sér í hlutina gengur það hratt og örugglega.
Hún er klárlega stríðnispúkinn í hópnum. Hún veit fátt skemmtilegra en að stríða og ærslast og er nánast alltaf í góðu skapi. Dillandi hláturinn getur brætt hvaða ísjaka sem er og hún hefur fengið mestu fýlupúka til að brosa til sín úti í búð. Enda þarf hún að heilsa upp á alla og senda þeim bros.
Það er yndislegt að vakna með Agnesi Hörpu. "Ég er vöknuð, mamma mín" er jafnan hvíslað mjúkri röddu og þá er sólin komin upp. Agnes Harpa er tilbúin að takast á við nýjan dag. Vill fléttur eins og Lína eða tíkarspena eins og Fíasól og skundar tindilfætt inn í daginn.
Jakob Hrafn er yngstur. 6 mánaða kútur sem spannar alla tilfinningaflóruna á hverjum degi. Hann getur orðið svakalega kátur, ægilega sár og bálreiður á sama klukkutímanum en um leið og hann brosir aftur er það gleymt og grafið. Jakob Hrafn fæddist stór og er ennþá að flýta sér, vill gera allt á tvöföldum hraða og það er í takt við fæðinguna. Hann fæddist á ógnarhraða og allt gekk svo vel. Nú er hann 6 mánaða með 6 tennur, farinn að borða og æfir sig þessa dagana í að sitja.
Það er yndislegt að vakna til hans snemma á morgnana og taka hann uppí, finna heitan og mjúkan líkamann sprikla undir sænginni. Gefa honum að drekka og strjúka dúnmjúkan kollinn. Svo sofnar hann aftur og sefur fram á hádegi.
Það eru forréttindi að fá að taka þátt í uppvexti barnanna sinna. Og ef þetta er væminn pistill, þá er það í lagi. Mér finnst það bara við hæfi að verða svolítið væminn þegar maður skrifar um það allra besta sem maður á.


11 Comments:
frábær pistill Eygló mín :) og svo sannur. knús á þig og þína
kv, joros vinkonos
þetta er svo mikið satt og rétt hjá þér, þetta eru frábær eintök og þau eru það eina sem geta fengið mig til að klökkna af ást. Takk fyrir daginn í dag og til hamingju með ÞIG, börnin þín og mann, þetta er flott og FRÁBÆR og yndisleg fjölskylda.
Gæti ekki án ykkar verið.
love you
Lísa sys.
Takk, elsku systir :)
Vá elsku Eygló mín, þetta er svo fallegur pistill, ég les þessi frábæru orð á meðan tárin streyma niður kinnarnar hjá mér. Það er svo merkilegt hvað við erum fljót að gleyma, við höfum ekki áorkað neitt í þessu lífi, hugsum við en svo sjáum við ljósin okkar í lífinu, ljósin sem við gleymum oft að hugsa um sem afrek í okkar lífi og þú búin að afreka það þrefalt oftar en ég duglega kona :) knús og þig mín yndislega og til hamingju með frumburðinn þinn :* :*
kv.Erna kennó
ótrúlega fallegur pistill og gaman verður fyrir þau að lesa þetta þegar þau verða eldri :) ég las hvert orð og naut þess enda mjög vel skrifað og táraðist! Til hamingju með stóra strákinn ykkar :)
Innilega til hamingjum með englana þína þrjá tárin trítla enn niður kinnarnar eftir að hafa lesið bloggið þitt. Þið eruð svo rík og gaman að fá að njóta þeirra með ykkur eins og í dag takk fyrir mig.
Ástarkveðja Heiða Björg
æ takk elsku krúttlurnar mínar :) þið eruð nú meiri yndin !
Það má alveg vera væmin þegar maður skrifar um börnin sín, gullmolana.
Þetta er ofsalega falleg færsla um enn fallegri börn. Þið eruð svo rík :)
Kv. Oddný
Einstaklega fallegur og vel skrifaður pistill mín kæra :) Maður má vera væmin endrum og eins
Kv .Ásta
Takk fyrir að deila þessu með okkur Eygló mín, og mikið er þetta satt og rétt hjá þér, eins og ég sagði í dag, maður hefur sannarlega mikið að lifa fyrir að hafa þessi frábæru börn þín að fylgjast með og fá lánuð endrum og sinnum. Takk fyrir að vera til öll fimm og takk fyri okkur. Love you
mamma
Takk, allar fyrir falleg orð ! :)
Post a Comment
<< Home