Army of me

Sunday, March 13, 2011

Í aðgerðarleysinu..

Ég er svo ótrúlega flöt um þessar mundir. Ég get næstum séð eyðimerkurrunnana fjúka framhjá í galtómum huganum, svo flöt og innihaldslaus er ég.

Ég hef ekkert getað skrifað af viti í þónokkurn tíma. Ég bara stari á auðan tölvuskjáinn eða snjóhvítan pappírinn og ekkert gerist. Næstum eins og eitthvað hafi bara gefið upp öndina innan í mér.

Það er samt ekkert að - ég held að skýringin felist í því að ég hef hangið of mikið heima og verið aðgerðarlaus í of langan tíma. Börnin hafa skipst á að vera lasin eins og algengt er á þessum pestarmánuðum ársins og ég hef því haft fá tækifæri til að fara út, láta til mín taka, og bara vera.

Þá banka upp gamlar hugsanir, gamlir draugar. Mikið get ég orðið þreytt á þeim.. hafa þeir ekkert annað að gera en að vera bankandi í mig í sífellu ?!

Fyrr en varir hef ég haft of mikinn tíma til að láta mér leiðast, velta mér upp úr hinu og þessu og spírallinn fer í gang. Ég þarf að gæta mín, það er svo auðvelt að sogast með og það er svo ótrúlega auðvelt að leyfa sér það ; fljóta bara með eins og viljalaust verkfæri og fyrr en varir er allt orðið um seinan. Þá hefst allt ruglið upp á nýtt og ég er komin á byrjunarreit. Nenni ég því ?

Áður en ég veit af getur kökusneið.. eða brauðsneið, ef því er að skipta, orðið eitthvað allt annað en saklaus kökusneið. Og ef ég gæti ekki að mér, gæti súkkulaðistykki orðið haldreipi mitt.. eða versti óvinur minn. Allt út af því að ég hafði ekki nógu mikið af spennandi hlutum fyrir stafni ! Svona virkar sjúkur hugur minn ; ég er veik á svellinu þó ég sé réttu megin við þessa hárfínu línu. Ennþá.

Og hvað get ég gert ? Það er nefnilega ekki nóg að ég átti mig á þessu og þykist skilja það, ég þarf líka að takast á við það. Það er svo mikið auðveldara að segja hlutina en horfast virkilega í augu við þá. Ég hef val um það að hanga heima eða fara út, nú þegar börnin eru orðin hress. Hvort vil ég hanga heima á náttbuxunum og velta mér upp úr eigin eymd og volæði eða henda mér í fatalarfa og fara út í dagsbirtuna ? Jafnvel þó það sé bara einn hringur með vagninn.

Ég hef val. Ennþá.


8 Comments:

At March 16, 2011 7:45 AM, Anonymous Anonymous said...

út, út út, elsku Eygló mín, bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga, og þú kemur með krílin þín í sveitina, og við gerum eitthvað spennó, hvað er ein tertusneið milli vina, bara krydd í tilveruna, burt með allt þetta megrunarkjaftæði, allir of feitir, en aldrei talað um þá sem eru ekki nógu feitir. Mundu mamma og pabbi þurfa á þér og ykkur öllum að halda nú sem aldrei fyrr, við þurfum að láta stappa í okkur stálinu og horfa björtum augum til framtíðar, á tímum mikilla breytinga. Sjáumst hressar á laugardag. Love you 4ever
mamma sín

 
At March 16, 2011 9:43 AM, Blogger Eygló said...

takk mamma mín - já ég kem bráðum í sveitina með smælkin ! Við finnum eitthvað sniðugt að bralla, er viss um það.

 
At March 17, 2011 11:30 AM, Anonymous Anonymous said...

pepp...pEPP...PEPP!!! Mundu: Farðu út þó þig langi það ekki! Borðaðu þó þig langi það ekki! Það er ótrúlegt hvað athafnir og næring koma manni langt í þessum barningi. Ég hef vaknað og virkilega pælt í að mæta ekki í vinnuna því drunginn tekur yfir. En drullast svo af stað og viti menn, líður miklu betur á eftir! Eftir að hafa áorkað einhverju, gert eitthvað sem gefur gildi og gefur mér eitthvað til baka. Ekki láta fjandans þrumuskýið vinna! EKKI gera ekki neitt! Knús og kram og baráttukveðja frá mér!
Anna Begga

 
At March 17, 2011 12:14 PM, Blogger Eygló said...

Takk fyrir peppið, Anna Begga ! So true... :)

 
At April 07, 2011 6:52 AM, Anonymous Anonymous said...

Sérstakt að lesa pistilinn þinn og það fyrsta sem ómar í eyru mér (frá grooveshark.com) er þetta lag http://www.youtube.com/watch?v=9fvkoxQIi0w

Ég hef voða lítið að uppbyggjandi að segja. En þú veist hvar ég er .. hvenær sem er! :)

Knús, klemm og kram sæta

- Ásta

 
At April 11, 2011 3:47 AM, Blogger Eygló said...

"so, be honest to yourself, don´t try to fake romance... " :)

 
At May 26, 2011 5:24 AM, Anonymous Anonymous said...

Varð allt í einu hugsað svo sterkt til þín í þessu lagi :) (jámm ég hlusta á tónlist næstum 24/7;))

I can see clearly now, the rain is gone,
I can see all obstacles in my way
Gone are the dark clouds that had me blind
It’s gonna be a bright (bright), bright (bright)
Sun-Shiny day.

I think I can make it now, the pain is gone
All of the bad feelings have disappeared
Here is the rainbow I’ve been prayin?for
It’s gonna be a bright (bright), bright (bright)
Sun-Shiny day.

Look all around, there’s nothin?but blue skies
Look straight ahead, nothin?but blue skies

I can see clearly now, the rain is gone,
I can see all obstacles in my way
Gone are the dark clouds that had me blind
It’s gonna be a bright (bright), bright (bright)
Sun-Shiny day.

- Ásta

 
At May 29, 2011 5:43 PM, Blogger Eygló said...

takk Ásta - bæði fyrir að hugsa til mín og setja inn þennan texta.. þetta er kúl lag og geðveikur texti ! :)

 

Post a Comment

<< Home