Að hafa trú á sjálfum sér..

Það er ekki vegna þess að "enginn" þoli mig sem ekkert virðist ætla að ganga upp. Það er vegna þess að stundum þoli ég mig ekki sjálf og ætla öllum öðrum einhverjar vafasamar kenndir sem þeir hljóti að hafa í minn garð.
Ruglað, ég veit. En svona virkar þetta hjá mér og ég er alveg sannfærð um að ég er ekki ein um þetta.
Þegar minnimáttarkenndin lætur á sér kræla, virðist allt einhvern veginn fara í vaskinn. Ég gref undan öllu sem ég er og stend fyrir og finnst ég allt í einu bara vera eitt stórt "ekkert". Að ekkert sérstakt einkenni mig, að ekkert sem ég geri sé nógu gott, að ég geti aldrei verið framúrskarandi á neinn hátt. Ég verð bara auð og tóm og vesældarleg.
Mér finnst sorglegt að sjá þetta hjá öðru fólki. Það er hins vegar stutt síðan ég fór að sjá þetta hjá mér líka. Ég er tilbúin til að hugsa núna að það sé kannski- ef til vill- mögulega einhver smuga á því að ég ætti að gefa mér meiri séns. Gera það sem mig langar og hafa trú á því að ég geti það.
Það er ýmislegt sem mig langar en hef ekki þorað að gera. Ég hef ekki þorað að stíga útfyrir kassann minn og bregða út af vananum af ótta við að styggja einhvern - og enn og aftur, leyfa öllum að sjá hvað ég er ófullkomin.
Lágt sjálfsmat er eitur sem kemur í veg fyrir að við lifum til fulls. Lágt sjálfsmat hefur ekki gert neitt til að hjálpa mér. Ekki neitt ! Það er því klárlega á verkefnalistanum mínum núna að fara smám saman að gera hluti sem ég hef ekki þorað að gera en hefur þó langað. Bæði langtíma- og skammtímamarkmið.
Ég hef trú á því að aðrir geti þetta - þá verð ég líka að hafa trú á því að ég geti sjálf stigið út fyrir kassann minn og gert það sem mig langar, óttalaus og stolt.
Þetta er ekkert auðvelt og stundum vildi ég að gott sjálfsmat kæmi í pilluformi !


9 Comments:
Elsku Eygló mín, Þekkjum við einhvern sem er fullkominn ? Langar okkur að þekkja slika manneskju ?
Nei við viljum þekkja fólk eins og þig, sem ert þú sjálf og hefur gefið meira af þér en þú trúir, og getur svo ótrúlega margt, ert bæði falleg og góð listræn og gáfuð, þó svo þú teljir það ekki sjálf. Takk fyrir að vera sú sem þú ert, fallega góða dóttir mín og pabba, mamma, systir, eiginkona mágkona og allt hitt, við elskum þig öll, þín mamma.
Æ vá, takk fyrir yndislega fallegt komment, elsku mamma mín ! :)
Veistu, mér fannst ég hafa verið að lesa um sjálfa mig!
Stattu með sjálfri þér! Þú getur miklu meira en þú heldur! :)
Bestu kveðjur, Snærún
Mikið þekki ég þessa tilfinningu elsku Eygló mín!Fullkomnunaráráttan oft að gera út af við mig!
Tek heilshugar undir með mömmu þinni - þú hefur svo marga kosti að bera :) Fyndinn, skapandi, umhyggjusöm, sæt, klár, sniðug og svo margt meira.
Knúskveðjur, Ásta
Ohh takk, yndislegu stelpur ! Gott að fá svona ego-búst þó ég roðni eilítið við það ! ;) þið eruð frábærar, báðar tvær :)
Í mínum huga ertu fullkomin, og ég gæti ekki hugsað mér lífið án þín eða þig öðruvísi á neinn hátt. Eina sem ég bið og óska er að þér líði ALLTAF vel.
elska þig endalaust
þín systir Lísa
Eygó mín ég held að það væri ekkert varið í að þekkja þig ef þú værir fullkomin í orðsins fyllstu merkingu Hef kynnst mörgum á langri æfi og sem betur fer örfáum sem álýta sig fullkomna og þá þekki ég ekki lengur
þannig að allt það besta þér til handa en í öllum bænum vertu þú sjálf alltaf gamla í sveitinni
Mörg sannleikskorn í þessum huleiðingum og ég þekki þetta sjálf...og alveg örugglega mjög margir. Maður er oftast nær sjálfum sér verstur!
Alltaf áhugavert að lesa pistlana þína. Þú ert frábær penni - hreinskilin og einlæg.
Knúsar, Jóhanna.
Sem betur fer er enginn fullkomin þó þú komist nú annsi nálægt því flotta frænka mín. En láttu mig vita ef þú finnur svona pillur þarf eins og einn stóran kassa :)
kveðja Heiða Björg.
Post a Comment
<< Home