Army of me

Thursday, December 20, 2012

Þakklæti



Ég elska aðventuna. Eftir að ég varð mamma fór ég að elska aðventuna enn meir. Ég verð spennt með börnunum og nýt þess með hverri frumu líkama míns að sjá þau upplifa spennu og tilhlökkun.

Í vikunni gekk ég niður Laugarveginn með manninum mínum og yngri börnunum tveimur (sá elsti var i heimsókn hjá besta vininum) og við þurftum að stoppa við annan hvern búðarglugga til að skoða dýrðina. Glimmer, ljós, skreytta ísbirni, brosandi jólasveina. Andlitin ljómuðu og sífellt var hrópað "vá mamma, sjáðu!" eða "pabbi, skoðum þennan jólasvein!" osfrv.

Ég hugsa oft til barnanna minna þegar ég er ekki upp á mitt besta. Þá þarf ég að minna mig á að sjá gleðina í því smáa. Það þarf ekki allt að vera fullkomið til að lífið sé í lagi. Ég þarf ekki að eiga allt eða áorka öllu í einu. Bara það að kaffibarþjónninn geri fallegt mynstur í kaffið mitt getur verið tilefni til að gleðjast pínulítið :)

Þetta kann að hljóma klisjulega en svona sé ég þetta samt. Ég er ekki alltaf svona nægjusöm þó ég fegin vildi.  Ég hef þó fulla trú á því að ég komist þangað með æfingunni.

Ég vona svo sannarlega að þið hafið notið aðventunnar, kæru vinir, og að jólin verði notaleg og ljúf hjá ykkur öllum. Gefum okkur smá séns og njótum alls þess smáa og yndislega í lífinu.

Jólakveðja
Eygló

3 Comments:

At December 22, 2012 3:53 PM, Anonymous Anonymous said...

svo satt og fallegt blogg, þessir litlu hlutir sem gefa lífinu gildi. Það er nauðsynlegt að minna á hvað þessir litlu hlutir skipta miklu máli, og hvernig þeir geta lætt fram bros á annars grámyglulegt andlit manns. Það eru svona "móment" sem ég ryfja upp reglulega og kími út í annað..og er reglulega spurð "hvað ertu að hugsa sem fær þig til að brosa"...oftast er ég að hugsa um atvik sem hafa átt sér stað með þér eða börnunum.
elska þig alltaf
þín stóra sys.

 
At December 29, 2012 4:14 PM, Blogger Eygló said...

Takk, elsku systir ! Já ég á líka mörg flissmóment þegar ég hugsa um það sem við höfum brallað saman ! :)

 
At January 19, 2013 5:17 PM, Anonymous Anonymous said...

Sakna þess að heyra frá þér, þú ert svo einstök manneskja og frábær í að koma því á "blað"
Love you
Þín sys alltaf

 

Post a Comment

<< Home