..og enn banka raddirnar uppá..

Þessar gagnrýnisraddir dúkka ennþá upp með reglulegu millibili þó ég kunni núorðið betur að snúa þær niður í götuna jafn óðum og þær birtast. En suma daga gengur það ekki vel og í þeim fasa hef ég verið undanfarið.
Með því að leyfa þessum röddum að "grassera" óáreittum í höfðinu í þennan tíma hefur allur þrótturinn horfið úr mér. Ég hætti að nenna, hætti að gera, hætti jafnvel næstum því að langa nokkurn skapaðan hlut. Ég fell í einhvern sjálfvorkunnarpytt og finnst ég einskis megnug - finnst ég ekkert geta gert til að breyta hlutunum og finnst bara allt einhvern veginn dáið innan í mér. Þess vegna hætti ég að blogga - mér finnst ég ekki geta komið staf á skjáinn án þess að hann verði kjánalegur og innantómur.
Stundum finnst mér þetta vera eilífðarverkefni - bara það að læra að meta sjálfa mig að verðleikum og rífa mig ekki niður fyrir alla skapaða hluti hvert einasta augnablik hvers einasta dags. Þetta kann að hljóma fáránlega fyrir einhverjum ykkar, ég geri mér grein fyrir því. Ég veit samt að sama skapi að ég er ekki ein um þetta niðurrif og þessa líðan. Þess vegna þori ég að skrifa þetta blogg - og öll hin bloggin ef því er að skipta. Vegna þess að ég veit að ég er ekki ein og vegna þess að ég þekki það af eigin raun að það er gott að vita að einhverjum öðrum líður eins og þér sjálfum - jafnvel þó ég óski engum að eiga í vandræðum með sjálfstraustið.
Nú er kominn tími til (eina ferðina enn) að ég kippi upp um mig brókunum, spenni axlaböndin, sjúgi upp í nefið, hætti þessu volæði og haldi áfram veginn. Það er allt í lagi að hrasa eða detta, svo lengi sem þú getur staðið upp aftur og haldið áfram. Það gerir nefnilega bara engum gagn að liggja í eymd og volæði í drullupolli og svamla þar til eilífðarnóns.


7 Comments:
Takk elsku Eygló fyrir að deila hugrenningum þínum með okkur. Áfram stelpa, áfram skrifaðu og skrifaðu þú hefur svo mikið að segja. Ég er næstum farin að telja dagana þangað til ég verð komin nær þér og ykkur systrum og öllu ykkar fólki.
Love you
mamma
Takk, elsku mamma mín :*
Gott að heyra að þú ert komin í gang aftur!
Ekki missa móðinn, þó þú hrasir aðeins geturðu vel staðið upp sterkari aftur! Allir hrasa einhvern tímann, það gerði ég fyrir svolitlu síðan og er ekki enn farin að standa almennilega upp aftur.
Njóttu þess bara að vera til :) Njóttu barnanna þinna og mannsins :)
Það þarf kjark til að standa upp aftur eftir að maður hefur hrasað..það sýnir þinn innri mann, þú getur og þú gefst ekki upp. Enginn sagði að þetta væri auðvelt, en þú GETUR og ert að GETA.
Ég er stolt af þér.
Love you always
stóra sys.
Æ takk fyrir falleg komment ! Snærún - þú getur þetta, þú hefur þetta allt í hendi þér :) bara gera, ekki pæla, manstu :)
Elsku sys- takk fyrir peppið, þú ert alltaf svo góð í að hressa mig við ! love you :*
Grúslan mín .. ég er á svo ógurlega líkum stað og þú lýsir núna. En þú ert ein af mínum fyrirmyndum - flott, sterk, fyndin, klár, falleg og góð! Berjumst saman við þennan púka á öxlinni á okkur. Knús og klemm - Ásta
Takk Ásta mín ! :) já viðð berjumst saman við púkana - glætan spætan að þeir fái að ráða sko ! :)
Post a Comment
<< Home