Með skottið á milli fótanna
Ég hef ekki náð mér upp úr lægðinni sem ég féll í fyrir nokkru og nú er svo komið að ég vil standa upp. Mér tókst ekki að gera það ein og því fæ ég hjálp. Frá og með deginum í dag er ég komin í 6 vikna veikindaleyfi til að hefja meðferð á ný og tækla þennan púka sem pínir mig og kvelur.
Ég get nefnilega engan veginn verið ég sjálf þegar púkinn inni í mér hefur svo hátt að ég get ekki einu sinni hugsað skýrt.
Ég má þakka fyrir að hafa frábært fólk í kringum mig ; vini sem styðja mig fram í rauðan dauðann, systur og foreldra og nána ættingja sem eru boðnir og búnir til að hlaupa undir bagga, yndislegan eiginmann sem hefur áhyggjur, skilningsríka vinnufélaga og ótrúlega umburðarlynda og ljúfa yfirmenn, og svo mætti lengi telja. Þetta gæti verið svo margfalt verra en það er.
Eina manneskjan sem er með fordóma og leiðindi í minn garð er ég sjálf. Þegar kemur að því að sýna öðrum umburðarlyndi er ég fyrst á staðinn en þegar ég þarf sjálf á skilningi og umburðarlyndi að halda get ég ekki með nokkru móti veitt mér réttinn til slíks.
Mér fannst ég lúpuleg og misheppnuð þegar ég kvaddi vinnufélagana í gær ; lítil stelpa sem klúðraði hlutunum. Innst inni veit ég samt að það er eitthvað heilbrigði þarna undir niðri. Heilbrigðið sem rak mig til þess að þiggja útréttar hendur. Jafnvel þó ég hafi þurft að gera það áður.


7 Comments:
Elsku krúttið mitt! Ég trúi því staðfastlega að þú sigrir baráttuna við púkan. Hef fulla trú á þér. Stundum þarf maður að bíta í vörina og reyna að komast hjá skömminni sem kom þegar maður féll. Ég veit það er erfitt. En það er hægt .. eitt lítið skref í einu og áður en þú veist af eru þau orðin að stóru skrefi.
Þú veist hvar ég er ef þig vantar eitthvað - sama hvaða og hvenær sem er!
Gangi þér vel flotta yndislega kona.
-Ásta
Það er fullkomlega eðlilegt að geta ekki allt sjálfur og maður á að þyggja hjálp þegar maður þarf á að halda. Veit að þú getur þetta eins og alltaf duglega frænka mín og mundu svo að fjölskyldan er alltaf tilbúin á hliðarlínunni.
Ástarkveðja Heiða Björg.
Elsku stelpan mín.Ekki þarft þú að skammast þín fyrir veikindi,af hverju heldur þú að allir séu góðir við þig og veiti þér skilning, af því að við vitum að þú getur þetta.Þessi púkaskömm sem er að angra þig verður feginn að forða sér þegar þú nærð yfirhöndinni.É sendi þér allar mínar bestu og fallegastu hugsanir sem ég get fylgist með þér risa risa knús á þig gamla í sveitinni
Elsku Eygló mín, ég þarf ekki að skrifa neitt hér, þú veist þetta allt, þú ert dugleg og viðurkennir að þurfa hjálp og það er það eina rétta. Ef þú bara vissir hvað þú hjálpar mörgum með þessum skrifum þínum, alveg fullt, fullt af fólki út um allt. Ég er stollt af þér fallega stelpa og tek undir með systur þinni, þú veist hvað hún sagði !
Þið eruð flottastar! Gangi þér vel eins og alltaf við erum mörg á hliðarlínunni og ég er núna búin að svæfa áhyggjupúkann. Love you mamma
Hetjan mín!
Luv
-T
Elska þig og er óendanlega stolt af þér...þú ert hvundagshetjan mín.
þín sys.
Elsku frænka. Að viðurkenna að maður þurfi hjálp er alveg ótrúlega stórt skref í áttina að bata. Vittu til. Þú ert algjör hetja og getur þetta ! Bestu kveðjur - Ranný
Post a Comment
<< Home