Army of me

Wednesday, September 19, 2012

Ég á mér draum

Þó ég komist ekki með tærnar þar sem Martin Luther King hefur hælana á ég mér draum, líkt og hann. Eða reyndar á ég mér marga drauma. Ég hnýt um þessa drauma eftir því sem ég hlúi betur að mér. Þeir dúkka upp þegar ég hef sinnt mér vel en þegar verr gengur, er eins og þeir falli undir lag af ryki og gleymist um stundarsakir.

Ég á misgóða daga. Haustið og veturinn er ekki minn tími. Ég verð döpur og á erfitt með að ráða við einföld verkefni. Hlutirnir vaxa mér í augum og mér finnst þeir óyfirstíganlegir. Ég veit samt betur núorðið. Ég veit að ég þarf bara að setja undir mig höfuðið og halda áfram og hugsa um það sem skiptir máli. Einbeita mér að draumunum mínum en á sama tíma að fara ekki framúr sjálfri mér.

Ég er enn að reyna að útrýma eilífu samviskubiti og fullkomnunaráráttu. Ekkert sem ég geri hefur verið nógu gott ef það er ekki fullkomið. Og þar sem fullkomnun er afstætt og fjarlægt hugtak hef ég aldrei náð þessari fullkomnun. Sem, eins og ég hef oft skrifað áður um, verður þess valdandi að ég verð aldrei ánægð.
Ég er heima með lasið barn. Dóttir mín er á fjórða degi veikinda en á undan veikindum hennar átti litli bróðir hennar góða veikindarispu sem maðurinn minn tók að mestu á sig. Það þarf því ekki að spyrja að því að samviskubitið er að éta mig lifandi. Ég get ekki farið með barnið veikt í leikskólann en líðu eins og ég sé að svíkjast um og skrópa og að allir séu í vandræðum vegna þess að ég mætti ekki til vinnu. Það er fyndið í ljósi þess að, eins ómöguleg og mér finnst ég vera,  þá lít ég greinilega á að ég sé ómissandi !

Þegar fullkomnunaráráttan og minnimáttarkenndin skipar svona stóran sess er erfitt að elta drauma en ég ætla að gera það samt. Ég tek bara hænuskref.

Nú er ég byrjuð á kvöldnámskeiði hjá Endurmenntun HÍ. Anton minn var svo sniðugur að gefa mér námskeiðið í afmælisgjöf og þar með henda mér út í djúpu laugina. Fyrsta kvöldið var ég skjálfhent með lemjandi hjartslátt. Næsta kvöld var auðveldara og ég talaði meira að segja fyrir framan allan bekkinn ! Ég nýt þess að komast út á kvöldin og læra um ritstörf, tala um ritstörf og æfa mig í því að skrifa. Það er ótrúlega gefandi að sinna því sem maður hefur brennandi áhuga á. Ég mæli sterklega með þessu við ykkur öll !

Ég þarf ekki að vera efni í fullkomið metsöluskáld eða rithöfund. Ég geri bara mitt besta og ætla að njóta þess að auki.

6 Comments:

At September 21, 2012 1:06 PM, Anonymous Anonymous said...

Ég er svo stolt af þér elsku sys, þú ert frábær og duglegust. Ég hlakka alltaf til að lesa eftir þig, bloggið þitt finnst mér meira að segja spennandi.
Þér eru allir vegir færir, og já þú ert ómissandi, mitt líf væri svo innantómt án þín, svo þú ert ómissandi fyrir mig. En samviskupúkinn er óþarfur...þú hefur alltaf sinnt þínu af heilum hug og munt framvegis gera.
love you endalaust hring eftir hring, þín systir.

 
At September 24, 2012 3:08 PM, Blogger Eygló said...

Takk elsku sys - elska þig líka allan hringinn..oghring eftir hring eftir hring.. :)

 
At October 07, 2012 4:28 PM, Anonymous Anonymous said...

Elsku Eygló, gaman að sjá smá skrif frá þér. Þú ert vonandi búin að sjá núna hversu frábær þú ert, ( ég veit vel þú efast alltaf) En ég sá ummælin um söguna þína, og ég segi nú bara, " það vildu margir Lilju kveðið hafa" Til hamingju elsku stelpan mín. Og auðvitað stendur þú þig í vinnunni, það efast enginn um það, nema þú sjálf. Love you
mamma

 
At November 05, 2012 10:48 AM, Anonymous Anonymous said...

Sakna skrifanna þinna og þín.
Elska þig litla ljón.
Knús frá stóru sys.

 
At November 30, 2012 6:23 AM, Anonymous Anonymous said...

Our deepest fear is not that we are inadequate.
Our deepest fear is that we are powerful beyond measure.
It is our light, not our darkness that most frightens us.
We ask ourselves, Who am I to be brilliant,
gorgeous, talented, fabulous?
Actually, who are you not to be?
- Marianne Williamsson

Þessar línur (sem og reyndar fleiri eins og "life begins where your comfortzone ends") komu í huga minn þegar ég las færsluna þína.

Þekki þessar tilfinningar sem þú lýsir alltof vel á eigin skinni. Munum að borða fílinn í litlum skömmtum ;)
Þú ert yndi!

knús og kram
Ásta

 
At December 03, 2012 3:11 PM, Blogger Eygló said...

Takk fyrir falleg komment ! Ég er bara að sjá þau núna, er búin að liggja í hálfgerðum dvala - börnin búin að vera veik í allan vetur og vinnan og daglegt líf að þvælast fyrir ;) en ég hræri í aðra færslu fljótlega, ég lofa !

 

Post a Comment

<< Home