Ég og svo allir hinir

Í gær var ég kvíðin og meyr. Ég sá fyrir mér allt það versta í stöðunni. Ég var hrædd við að fara út úr því verndaða umhverfi sem meðferðin er. Þar hef ég dvalið alla daga, örugg inni í húsinu, umkringd fagaðilum og þolendum átraskana sem allir skilja nokkurn veginn hvað ég er að ganga í gegnum. Ég óttaðist það að yfirgefa bómullina sem mér hefur verið pakkað inn í. Óttaðist það að meiða mig á umheiminum.
Ég svaf lítið í nótt, með kvíðahnút á stærð við melónu í maganum. Ég sá fyrir mér að börnin væru búin að gleyma mér og að enginn myndi þekkja mig aftur sökum þess hversu gríðarlega "stór" ég væri orðin. Ég málaði skrattann á vegginn eina ferðina enn.
Vinnufélagar mínir og yfirmaður tóku mér opnum örmum og enginn - hvorki börn né starfsfólk- virtist vera búinn að gleyma mér. Áhyggjurnar voru semsé óþarfar og ég var því búin að eyða dýrmætum tíma í óþarfa áhyggjur.
Ég á þetta til - að leyfa hugsununum að flæða frjálsum og leiða mig út í vanlíðan. Oftar en ekki kemst ég svo að því síðar meir að ég hafði búið til vandamál og talið mig vera að brynja mig fyrir því allra versta sem varð svo ekkert úr.
Í meðferðinni byrjaði ég að gera hugsanaskrár og ég er enn að æfa mig í þeim - bæði að gera þær skriflega og að endurmeta í huganum. Við hverja niðurrifshugsun þarf ég að koma með haldbær mótrök. Þetta getur verið erfitt en er að sama skapi ótrúlega hjálplegt. Með því að vera dugleg að gera hugsanaskrár og endurmeta hugsanir sem valda mér vanlíðan mun ég smám saman ná að snúa á þessar ranghugmyndir mínar um mig, líkama minn og umhverfið allt í kringum mig.
Allar þessar pælingar valda mér andlegum harðsperrum. Ég verð stundum þreytt og lúin en ég veit að ég er að gera rétt. Skammtíma vanlíðan fyrir langtíma vellíðan.
Ég þarf að sætta mig við konuna í speglinum. Í mínum augum er hún ógnarstór og algjörlega agalaus en það eru ýmis mótrök sem segja mér annað. Ég er svo heppin með meðferðaraðila sem hjálpar mér að koma auga á skekkjurnar og sætta mig við mig eins og ég er. Mér finnst nefnilega allir eiga það skilið að vera nákvæmlega eins og þeir eru. Allir nema ég.
Þetta er viðhorf sem ég er að vinna í að breyta. Hvers vegna ætti ég ekki líka að eiga það skilið að njóta lífsins og líða vel í eigin skinni ?


6 Comments:
Auðvitað áttu það skilið að líða vel, mér finnst þú líka svo frábær, dugleg og klár kona og átt svo sannarlega skilð að blómstra. Þarf að fara að koma í heimsókn svo langt síðan ég hef hitt þig og gullmolana þína :)
kv.Heiða Björg
Elsku duglega stelpan mín þú ert og verður alltaf hetja í mínum huga.
Ekki vil ég hafa þig öðruvísi duglega og fallega stelpan mín það er yndislegt að vita að þú sért farin að vinna aftur og viss er ég um að allir bæði litlir og stórir hafa verið glaðir að sjá þig á vinnustaðnum. ég er vissum að leiðindapúkinn er komin í eilífðarfríið og láti ekki sjá sig meir.Njóttu þess að vera til elsku stelpan mín Þúsund risa knús á þig gamla í sveitinni
Ef ég gæti leikið spegilinn þinn í einn dag, og leyft þér að fá augu mín að láni til að þú gætir séð allt það fallega, góða og dásamlega sem ég sé þegar ég lít þig augum, þá myndi ég gera það án þess að hugsa. Ég sé svo margt í þér sem erfitt er að koma orðum að...ég vildi óska að þú sæir allt sem ég sé.
Mest af öllu er ég stolt af þér, því þú ert besta vinkona mín, hetjan mín og fyrirmynd mín í svo mörgu.
Elska þig nákvæmlega eins og þú ert forever.
Þín stóra sys (sem er samt minni)
Lísa
Elsku stelpan mín.
Þú ert fallegust klárust og best, ég er stolt af þér og elska þig út og inn og allt um kring alveg eins og þú ert.
Þér á að líða vel, ég vildi að ég gæti látið þér líða vel um aldur og ævi.
Til hamingju með árangurinn !
Þín mamma
Elsku vinkona! Ég er svo stolt af þér - og ég hef fulla trú á að þú stendur uppi sem sigurvegari. Það er ekki annað hægt en að taka þig sér til fyrirmyndar.
Ekki gleyma hvað þú ert frábær, flott, góð og skemmtileg ofurstelpa :)
Knúsur - Ásta
Takk allar.. þið eruð nú meiri krúttin ! Það er ekki laust við að kona fari eilítið hjá sér bara ;) Love you !
Post a Comment
<< Home